Klipp Klopp

Mér hefur almennt líkað mjög vel við Klopp en nú er hann bara að verða einn versti vælukjóinn í enska boltanum (fyrst Mourinho og Conte eru farnir).

Fyrr í vikunni kveinaði hann yfir ástandi vallarins þegar Liverpool mætti Leicester, en þó var varla við neinn að sakast nema þá helst hans eigin vallarstarfsmenn.

Og nú ýjar hann að því að dómgæslan hafi hallað á þá í síðari hálfleik í dag vegna þess að rangstöðumark þeirra í fyrri hálfleik fékk að standa á einhvern óskiljanlegan hátt.  En hvers vegna var þá ekki dæmd rangstaða á Origi alveg í lokin?


mbl.is Kannski vissi dómarinn það í seinni hálfleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og nafnið á liðinu...

... hlýtur það ekki að vera Fram og Aftur ???


mbl.is Fram og Afturelding saman með lið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurningin er...

...sló Dujshebajev Guðmund í punginn???


mbl.is Guðmundur í gullleikinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki Þýskaland

Samkvæmt Wikipedia (https://en.wikipedia.org/wiki/UEFA_Euro_2016) sem vísar beint í UEFA þá er ljóst að ef þriðja sætið í F-riðli gefur sæti í 16 liða úrslitum þá verða mótherjarnir Króatía, en ekki Þýskaland.

Við gætum sem sagt mætt Króatíu, Englandi, Belgíu, Svíþjóð eða (mjög ólíklegt) Írlandi ef við komumst áfram.

 


mbl.is Portúgalir enduðu í 3. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússneskur dómari!

Og Rússar eru rétt fyrir ofan okkur í stöðu liða í 2. sæti riðlanna.  Með jafntefli myndum við fara upp fyrir Rússa og gera vonir þeirra um að komast í umspilið að engu.  Því er það Rússlandi mjög í hag að við töpum þessum leik.

Þvílíkt klúður við val á dómara hjá UEFA.

(Skrifað stuttu eftir að mark var dæmt af okkur fyrir brot á markverði Frakka á 21. mínútu)


mbl.is Kristján Gauti hélt EM vonum lifandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsti leikurinn?

Léku HK og Þróttur þá ekki í gær?  Þó það hefði verið á mbl.is í gær? 

http://www.mbl.is/sport/efstadeild/2014/02/14/hk_vann_thrott_i_sjo_marka_leik/


mbl.is Skagamenn unnu fyrsta leik dagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virðingarleysi

Félög sem stunda svona sýna vítavert virðingarleysi gagnvart öðrum félögum, sem taka þátt, og fara eftir reglunum.  Þegar augljóst er að þetta er gert vísvitandi (sjö leikmenn?), þá þarf KSÍ að vísa þessum félögum úr mótinu og meina þeim þátttöku í 1-2 ár til viðbótar.  Þá geta þau bara spilað "þýðingarlausa æfingaleiki" allt vorið.  Líklega myndi þetta þá hverfa mjög skyndilega.
mbl.is Úrslitin í raun ákveðin fyrirfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa skal það sem réttara er!

Það er ekki rétt að markalaust jafntefli hefði nægt íslenska liðinu til að komast í undanúrslit.  Ástæðan fyrir því er sú að samkvæmt reglum keppninnar gilda innbyrðis viðureignir fyrst.  Því hefðu Frakkar farið áfram á fleiri skoruðum mörkum í innbyrðis viðureignum (3 mörk), Ísland hefði endað í þriðja sæti (2 mörk) og Georgía í fjórða sæti (1 mark).

Hins vegar hefði 1-1 jafntefli nægt Íslandi, því þá hefðum við verið jafnir Frökkum í innbyrðis viðureignum og þá hefði verið litið á markatölu úr öllum leikjum, þar sem við myndum hafa vinninginn.

En strákarnir náðu ekki að skora þetta eina mark sem þurfti og því fór sem fór.


mbl.is Strákarnir sex mínútum frá undanúrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er nú ekki alveg rétt...

Okkur gæti alveg nægt að vinna Dani með þriggja marka mun.  Ekki líklegt samt.

Annað er að því er stöðugt haldið fram að Svisslendingar séu komnir í undanúrslit, en það er ekki rétt.  Ef þeir tapa fyrir Hvít-Rússum og Danir vinna okkur, þá er vel hugsanlegt að Svisslendingar sitji eftir.


mbl.is Íslendingar eiga enn möguleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott mark hjá Hemma...

... rétt í þessu.  Afgreiddi þetta eins og þaulvanur markaskorari.
mbl.is Hermann í liði Portsmouth en Jóhannes á bekknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband