Bíðum nú við!

Eru þá 20% "töluverðar líkur", en 80% eru "litlar líkur"???

Varla mjög traustvekjandi.


mbl.is Líklega farið yfir hættumörk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar hef ég heyrt þetta áður?

Jú, í barnaskóla á 8. áratug síðustu aldar fékk ég að vita að það liti út fyrir að það yrðu nánast engir regnskógar eftir í heiminum þegar árið 2000 gengi í garð. 

Hmmm... 

Tja, mikið er ég nú feginn að þessu var slegið á frest til 2030, eða svo.  Wink


mbl.is Meira en helmingur Amazon regnskógarins gæti eyðst fyrir 2030
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt ríki!

"...sýnir að Mike Huckabee, fyrrum ríkisstjóri Massachusetts, hefur aukið fylgi sitt..."

Það rétta er að Huckabee er fyrrum ríkisstjóri Arkansas.  Mitt Romney er fyrrum ríkisstjóri Massachusetts.


mbl.is Fylgi Huckabees eykst umtalsvert meðal repúblikana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýralíf

Vonandi eru engir jólakettir þarna.  Það væri nú heldur betur neyðarlegt fyrir Birgi að lenda í jólakettinum FYRIR JÓL!  Smile
mbl.is Birgir: „Ég fagna því ef það verður skýjað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað sáu þeir?

Ekki veit ég hvað þeir Kristinn og Gunnar sáu, en það hefur greinilega verið eitthvað annað en sjónvarpsmyndavélarnar sáu.  Ég gat ekki betur séð en að boltinn hafi farið í lærið á varnarmanninum, þaðan í hálsinn/andlitið og aftur fyrir endamörk.  Og jafnvel þótt boltinn hafi hrokkið í hönd varnarmannsins, þá var augljóslega ekki um ásetning að ræða.  Vesalings varnarmaðurinn virtist einmitt leggja sig fram um að halda höndunum fyrir aftan sig til að forðast slíkan atburð.  Og svo er hann rekinn út af, greyið.

Það væri athyglisvert hvað Kristinn hefur um þetta að segja þegar hann er búinn að sjá atvikið á myndbandi.


mbl.is ,,Vorum sammála um dóminn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú já...

...bara 3 leikir innbyrðis leikir úrvalsdeildarliða?

Hvort er það Sunderland eða Wigan sem telst þá ekki vera í úrvalsdeildinni?


mbl.is Aston Villa gegn Man.Utd í bikarnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seldust vel...

"Forseti seldi lyklakippur með björgunarsveitarkonu til gesta Smáralindar í Kópavogi og er óhætt að segja að það hafi tekist vel þar sem hann seldi töluverðan fjölda."

Var þetta þá bara stytta af björgunarsveitarkonu, eða hvað?  Annars hafa kannski sumir keypt sér svona og hent svo bara lyklakippunni.  Það væri nú ekki amalegt að hafa sína eigin björgunarsveitarkonu.


mbl.is Forseti Íslands seldi vel af Neyðarkalli björgunarsveita
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin skýring??

Þetta mál kemur því nákvæmlega ekkert við að það sé verið að níðast á manni með íslamskt nafn, en allt með það að gera að það fundust leifar af sprengiefni í farangri hans.  Hann ætti kannski að verja meiri tíma í að leggja til hugsanlega(r) ástæðu(r) þessa, en að reyna að mála sjálfan sig sem eitthvað fórnarlamb.
mbl.is Breskur þingmaður í vandræðum á bandarískum flugvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei, nei!

"Gautaborg er með 46 stig líkt Djurgården en Halmstad er með 45 stig."

Þó þetta sé rétt með Íslendingaliðin í efstu sætunum, þá er það Kalmar sem er í þriðja sætinu með 45 stig.

Staðan í Svíþjóð


mbl.is Barátta Gautaborgar og Djurgården heldur áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðgengst þetta ennþá?

Hæstiréttur staðfesti í dag farbann yfir karlmanni sem grunaður er um brot á hengingarlögum...

 Ég sem hélt að það væri búið að afnema hengingar á Íslandi.  Wink


mbl.is Farbann staðfest í Hæstarétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband