Færsluflokkur: Pepsi-deildin
20.1.2017 | 14:05
Og nafnið á liðinu...
... hlýtur það ekki að vera Fram og Aftur ???
Fram og Afturelding saman með lið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.9.2014 | 19:33
Rússneskur dómari!
Og Rússar eru rétt fyrir ofan okkur í stöðu liða í 2. sæti riðlanna. Með jafntefli myndum við fara upp fyrir Rússa og gera vonir þeirra um að komast í umspilið að engu. Því er það Rússlandi mjög í hag að við töpum þessum leik.
Þvílíkt klúður við val á dómara hjá UEFA.
(Skrifað stuttu eftir að mark var dæmt af okkur fyrir brot á markverði Frakka á 21. mínútu)
Kristján Gauti hélt EM vonum lifandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.2.2014 | 14:30
Fyrsti leikurinn?
Léku HK og Þróttur þá ekki í gær? Þó það hefði verið á mbl.is í gær?
http://www.mbl.is/sport/efstadeild/2014/02/14/hk_vann_thrott_i_sjo_marka_leik/
Skagamenn unnu fyrsta leik dagsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2014 | 12:44
Virðingarleysi
Úrslitin í raun ákveðin fyrirfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.6.2009 | 11:24
Ja-há!
"Kæru stuðningsmenn þrátt fyrir ljótt tap okkar manna gegn KR á sunnudag, þá gerum við ekki svona, eins og einn stuðningsmaður okkar gerði að henda flösku inná völlinn, og annar henti flösku í átt að KRingum en slíkur gjörningur getur haft með sér slæmar afleiðingar fyrir knattspyrnudeildina."
Það er sem sagt ekki vegna þess að einhver gæti stórslasast, sem við gerum ekki svona. Það er vegna þess að það gæti skaðað knattspyrnudeild Keflavíkur.
Og hvað ætla Keflvíkingar að gera við þennan mann sem hefur játað? Er það nóg? Væri ekki rétt að banna hann frá einhverjum leikjum? Hann segist taka fulla ábyrgð á gjörðum sínum, en það væri nú rétt að láta reyna á það hvort hann er tilbúinn til þess.
Og hvar voru allir þeir sem voru í kringum þann sem henti hinni flöskunni? Finnst þeim þetta bara allt í lagi? Ég trúi því nú ekki að það sé mikill fjöldi áhangenda Keflavíkur-liðsins sem halda hlífiskildi yfir svona villimennsku, en það virðist vera nóg af þeim samt.
Svona gerum við ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |