12.9.2007 | 13:28
FHingar í feluleik
Mikið óskaplega þætti mér nú vænt um það að FHingar hættu að fela sig á bak við það að svona ákvæði séu venja í svona lánssamningum. Eða að minnsta kosti gætu þeir svarað því hvers vegna þetta ákvæði var ekki í samningi þriðja leikmannsins? Er ekki bara alltaf svona ákvæði í lánssamningum, ha?
Jú, jú, FH hefur réttinn sín megin í þessu máli, en ég yrði hissa ef almenningur hefði minnsta áhuga á þessum leik. Það er alveg á hreinu að ég myndi ekki horfa á þennan leik í sjónvarpi (þó ég hefði tækifæri til), og þaðan af síður borga mig inn. Tímasóun!
Hundsvekktur að fá ekki að spila úrslitaleikinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.